22.3.10

#1 Grand Illusion (1937)



Grand Illusion er kvikmynd eftir Jean Renoir frá árinu 1937. Hún segir frá frönskum hermönnum í fyrri heimsstyrjöldinni og flótta þeirra úr fangabúðum Þjóðverja. Þrátt fyrir að vera opinberlega í stríði við hvern annan virðast söguhetjurnar ekki vera í neinu stríði sín á milli - þvert á móti því á meðal þeirra ríkir bræðralag og sameining.

Þessi mynd er hvorki dæmigerð fyrir minn smekk né hef ég eitthvað sérstakt að segja um hana sem ekki hefur verið sagt áður. Ég verð þó að viðurkenna að ég var frekar spennt að sjá hana, bæði vegna orðsporsins og svo auðvitað af því að Erich von Stroheim leikur í henni.

Grand Illusion ber nokkur einkenni dick-flick mynda en þær eru mér afar hugleiknar um þessar mundir því ég er að leika mér með greiningu hugtaksins. Myndin fjallar eingöngu um karla og kemur aðeins ein kona fram í henni svo markvert sé, myndin segir frá reynsluheimi karla enda praktísk málefni stríðs ekki oft á höndum kvenna í upphafi tuttugustu aldar. Að síðustu má nefna flótta en margar dick-flick myndir byggja á spennu tengdum flótta og/eða eltingarleik.

Svo er það náttúrulega hómóerótíkin. Karlar í konufötum eru stórmerkilegt fyrirbæri í kvikmyndum. Hvort sem þeir eru þannig klæddir til þess að dulbúast, gera grín að kynjunum eða hvað sem er þá eru þeir kynjaverur miklar. Í Grand Illusion má sjá hermenn klædda í konuföt til þess að vega upp á móti einhæfs félagskapar í fangabúðunum. Þeir gera það sér til skemmtunar og gleði.

Mér finnst samt ekki að það megi vega Grand Illusion niður með því að afgreiða hana sem hómóerótíska typpamynd þótt það megi svo sannarlega færa rök fyrir því að hún sé það líka. Dýptin í henni felst einna helst í því að það er enginn góður og enginn vondur í stríði Renoirs. Sögupersónurnar eru meira eins og leiksoppar örlaga sem koma þeim ekki beinlínis við, enda nær vinátta þeirra yfir óvinalínur. Þeir virðast sinna hlutverkum sínum sem hermenn af skyldurækni fremur en af föðurlandsást. Þetta má túlka sem höfnun á þjóðernishyggju af hálfu Renoirs - sérstaklega þegar útgáfuár myndarinnar er haft í huga. Til hliðsjónar má hafa samband aristókratanna tveggja í myndinni og örlög þeirra. Sósíalískur undirtónn myndarinnar er því ótvíræður þótt ópólítískur sé.

Helga Þórey Jónsdóttir

No comments:

Post a Comment