7.1.12

#2 Seven Samurai

Það fór að lokum svo að ég drattaðist til að horfa á Seven Samurai. Ég gerði það reyndar fyrir löngu (það eru jú liðin um tvö ár frá síðustu færslu) en svo þurfti ég að skoða hana aðeins aftur í haust í tengslum við skólann.

Mér finnst einna merkilegast við myndina hvað hún er hæg á sama tíma og framvindan er nokkuð stöðug. Það er ekki eins og það sé ekkert að gerast í henni, hún er bara hæglát, jafnvel yfirveguð. En hvað um það. Ég nenni eiginlega ekki að skrifa neitt um Seven Samurai, það er búið að segja allt um hana sem þarf að segja, hvernig safnað er í hópinn og svo framvegis. Svo er ég er ekki nógu góð í Kurosawa til þess að geta farið í einhverjar höfundafræðilegar vangaveltur. Aðallega langar mig bara að losna við þessa mynd af listanum svo hægt sé að skrifa um allar hinar myndirnar sem bíða. Það eru mörg flott skot í henni samt. Hér er eitt agalega smart.



*ég geri stjörnu hér sem gefur til kynna að hér muni mögulega koma umfjöllun þegar ég er fer í Kurosawa- eða kanónustuð.

Næst á listanum er The Lady Vanishes en ég hef séð hana áður og hlakka til að horfa aftur.

No comments:

Post a Comment